Þjóðskrá18. september 2020

Fasteignamarkaðurinn utan höfuðborgarsvæðis í ágúst 2020

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Norðurlandi í ágúst 2020 var 107.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á Norðurlandi í ágúst 2020 var 107. Þar af voru 55 samningar um eignir í fjölbýli, 39 samningar um eignir í sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 3.667 milljónir króna og meðalupphæð á samning 34,3 milljónir króna. Af þessum 107 voru 74 samningar um eignir á Akureyri. Þar af voru 48 samningar um eignir í fjölbýli, 21 samningur um eign í sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 2.681 milljón króna og meðalupphæð á samning 36,2 milljónir króna.

Á Austurlandi var 41 samningi þinglýst. Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli, 25 samningar um eignir í sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.014 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,7 milljónir króna. Af þessum 41 voru 16 samningar um eignir í Fjarðabyggð. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 290 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,1 milljónir króna.

Á Suðurlandi var 127 samningum þinglýst. Þar af voru 16 samningar um eignir í fjölbýli, 74 samningar um eignir í sérbýli og 37 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 4.318 milljónir króna og meðalupphæð á samning 34 milljónir króna. Af þessum 127 var 71 samningur um eign á Árborgarsvæðinu*. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjölbýli, 56 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 2.964 milljónir króna og meðalupphæð á samning 41,7 milljón króna.

Á Reykjanesi var 91 samningi þinglýst. Þar af var 51 samningur um eign í fjölbýli, 37 samningar um eignir í sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 3.609 milljónir króna og meðalupphæð á samning 39,7 milljónir króna. Af þessum 91 voru 70 samningar um eignir í Reykjanesbæ. Þar af voru 48 samningar um eignir í fjölbýli, 20 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 2.765 milljónir króna og meðalupphæð á samning 39,5 milljónir króna.

Á Vesturlandi var 78 samningum þinglýst. Þar af voru 35 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um eignir í sérbýli og 21 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 2.923 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,5 milljónir króna. Af þessum 78 voru 36 samningar um eignir á Akranesi. Þar af voru 28 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 1.663 milljónir króna og meðalupphæð á samning 46,2 milljónir króna.

Á Vestfjörðum var 24 samningum þinglýst. Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um eignir í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 345 milljónir króna og meðalupphæð á samning 14,4 milljónir króna. Af þessum 24 voru 11 samningar um eignir á Ísafirði. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 204 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,5 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir í ágúst 2020 eftir landshlutum

Norðurland

Austurland

Suðurland

Reykjanes

Vesturland

Vestfirðir

Tegund
eignar

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Fjölbýli

1.695

55

244

11

434

16

1.781

51

1.457

35

107

11

Sérbýli

1.666

39

707

25

3.080

74

1.718

37

801

22

216

9

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

306

13

63

5

804

37

110

3

665

21

22

4

Samtals

3.667

107

1.014

41

4.318

127

3.609

91

2.923

78

345

24

 

 

 

 

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir í ágúst 2020 í nokkrum sveitarfélögum

Akureyri

Fjarðarbyggð

Árborgarsvæði

Reykjanesbær

Akranes

Ísafjörður

Tegund
eignar

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaups.

Fjölbýli

1.518

48

53

4

361

12

1.699

48

1.281

28

37

2

Sérbýli

1.044

21

236

11

2.557

56

996

20

383

8

145

5

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

119

5

1

1

46

3

71

2

0

0

22

4

Samtals

2.681

74

290

16

2.964

71

2.765

70

1.663

36

204

11

 

*Sveitarfélögin: Árborg, Hveragerði og Ölfus.

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar