Þjóðskrá13. október 2020

Ný útgáfa af gervigögnum þjóðskrár

Ný útgáfa af gervigögnum fyrir þjóðskrá vegna hlutlausrar kynskráningar hefur verið birt á opingogn.is


Þjóðskrá Íslands hefur birt nýja útgáfa af gervigögnum sem ætluð eru fyrir hugbúnaðarþróun fyrir kerfi þar sem notast er við gögn úr þjóðskrá. Er um að ræða nýja útgáfu sem tekur tillit til hlutlausrar skráningu kyns sem ætlað er að verði miðlað frá og með janúar 2021.

Til aðgreiningar frá raunverulegum kennitölum innihalda kennitölur í gervigögnum stafina 14 og 15 í stafliðum 7 og 8 í hverri kennitölu. Öll nöfn í Þjóðskrá – gervigögn eru valin af handahófi og innihalda hástafina ÞÍ til að gefa til kynna að um gervigögn sé að ræða.

Allar kennitölur eru valdar af handahófi og endurspegla ekki einstaklinga í Þjóðskrá.
Gervigögnin má finna á opingogn.is.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar