Þjóðskrá02. nóvember 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í nóvember 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.963 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. nóvember sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 653 á sama tímabili.

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.963 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. nóvember sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 653 á sama tímabili. 

Í ný sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi hefur íbúum fjölgað um 77 íbúa síðan 1. desember sl. eða um 1,2%.

Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna ellefu mánuði eða um 11,6% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 10 íbúa eða úr 86 í 96 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahreppi um 9,9% og Svalbarðsstrandarhreppur um 8,1%. 
Þá fækkaði íbúum í 27 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili. 

Fækkun í einum landshluta

Lítilsháttar fækkun varð á Vestfjörðum. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,4% eða um 29 íbúa.

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,4% eða um 3.148 íbúa.  Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi eða um 1,7% eða um 537 íbúa. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.  


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar