Þjóðskrá09. nóvember 2020

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög - nóvember 2020

Alls voru 230.017 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. nóvember síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.670 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.044 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt

 Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 480 meðlimi.  Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 331 meðlimi.  Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.137 og í zuism fækkaði um 271 meðlimi. 

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 27.506 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. nóvember sl. eða 7,5% landsmanna. Alls eru 55.140 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 15,0%. 
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. nóvember sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar