Þjóðskrá10. nóvember 2020

Kosningaréttur íslenskra ríkisborgara sem eru búsettir erlendis

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili í útlöndum skemur en í 8 ár (þ.e. frá 1. desember 2012) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili í útlöndum lengur en í 8 ár, þ.e. hafa flutt frá Íslandi fyrir 1. desember 2012 verða að sækja um til Þjóðskrár Íslands um að verða teknir á kjörskrá. Umsókn þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Umsækjandi verður að hafa íslenskan ríkisborgararétt.
  • Umsækjandi verður að vera 18 ára eða eldri á kjördag.
  • Umsækjandi þarf einhvern tíma á ævinni að hafa átt lögheimili á Íslandi.

Fullnægjandi umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2020. Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir.

Hér má lesa nánar um kosningar og kosningarétt

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar