Þjóðskrá18. nóvember 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í október 2020

Vísitala leiguverðs lækkar um 0,4% á milli mánaða.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 200,1 stig í október 2020 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 0,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu Þjóðskrár Íslands.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í október 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 937 samningar, sem þinglýst var í október 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í október 2020 eru því unnar upp úr 500 leigusamningum sem þinglýst var í október 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í október 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 3808 2878 2852 2264
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3153 3224 2556 2347
Kópavogur 3892 2817 2581 2326
Garðabær og Hafnarfjörður 3740 2875 2397 2449
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur - 2636 2513 2073
Breiðholt - 2631 2724 1673
Kjalarnes og Mosfellsbær 4767 2640 1807 1647
Suðurnes - 2108 1700 1680
Vesturland - - 1662 -
Vestfirðir - 1437 1279 1273
Norðurland nema Akureyri 2533 2172 1882 1802
Akureyri - 1459 1825 -
Austurland 2827 2193 1795 1183
Suðurland - - - -

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks, upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar