Þjóðskrá02. desember 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - desember 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.051 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. desember sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 744 á sama tímabili.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.051 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. desember sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 744 á sama tímabili og íbúum Mosfellsbæjar fjölgaði um 496 íbúa. 
Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðið ár eða um 14,0% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 12 íbúa eða úr 86 í 98 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Svalbarðsstrandarhreppur um 9,8% og Reykhólahreppi um 9,2%.  Þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélagi af 69 á ofangreindu tímabili.  Fækkun í einum landshluta

Lítilsháttar fækkun varð á Vestfjörðum. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,3% eða um 18 íbúa.
Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,4% eða um 3.352 íbúa.  Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi eða um 1,8% eða um 54 íbúða.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar