Þjóðskrá21. desember 2020

Útgáfuáætlun 2021 komin út

Útgáfuáætlun 2021 fyrir Þjóðskrá Íslands er komin út. Áætlunin er að þessu sinni sett fram með breyttu sniði svo að notendur geti hlaðið henni niður í heild sinni.

Þjóðskrá Íslands hefur birt útgáfuáætlun frétta fyrir árið 2021. Þar má sjá yfirlit yfir fréttir með upplýsingum úr fasteignaskrá og almannaskrá sem áætlað er að birta á komandi ári auk frétta um aðra starfsemi sem fer fram hjá Þjóðskrá Íslands.

Að þessu sinni er útgáfuáætlunin sett fram með breyttu sniði eða í formi dagbókaryfirlits. Geta notendur hlaðið niður útgáfuáætluninni fyrir tölvupóst og stafræn dagatöl.

Útgáfuáætlunin er birt með fyrirvara um breytingar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar