Fasteignir26. janúar 2021

Fasteignamarkaðurinn árið 2020

Þegar árið 2020 er borið saman við árið 2019 fjölgar kaupsamningum um 15,3% og velta hækkar um 22,6%.

Fasteignavelta og fjöldi kaupsamninga

 

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum fyrir árið 2020 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 13.887 talsins og var upphæð viðskiptanna um 667 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar árið 2020 er borið saman við árið 2019 fjölgar kaupsamningum um 15,3% og velta hækkar um 22,6%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgar samningum um 15,3% á milli ára og velta hækkaði um 21,9%.

Fasteignavelta í milljónum króna
 
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta árið 2020
667.114
196.566
416.791
34.704
9.697
9.384
Þar af höfuðborgarsvæðið
490.585
108.644 354.580  25.186  1.032
1.147
Fjöldi kaupsamninga
 
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar árið 2020
13.887
3.470
9.098
606
481
232
Þar af höfuðborgarsvæðið
8.781
1.322
7.081
318
35
25

Meðalkaupverð

 
Meðalkaupverð í milljónum króna
 
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Meðalkaupverð árið 2020
48
57
46
57
20
40
Þar af höfuðborgarsvæðið
56
82
50
79
29
46

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með fyrirvara um að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til desember mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á talnaefnissíðu Þjóðskrár

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar