Fasteignir17. febrúar 2021

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í janúar 2021

Vísitala leiguverðs lækkar um 0,6% á milli mánaða.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 200,6 stig í janúar 2021 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,2% og síðastliðna 12 mánuði lækkaði hún um 1,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali en einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2021.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 877 samningar, sem þinglýst var í janúar 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2021 eru því unnar upp úr 608 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2021.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.


Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4567 3095 2753 2421
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3712 3105 2618 2461
Kópavogur 3615 2777 2516 2357
Garðabær og Hafnarfjörður 3746 2695 2388 2127
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 3875 2643 2447 2114
Breiðholt - 2935 2414 2244
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2931 2316 2412
Suðurnes - 2544 1903 1555
Vesturland - 2055 1652 1723
Vestfirðir - - 1509 -
Norðurland nema Akureyri - - 1375 1393
Akureyri - 2163 1868 1627
Austurland - 1866 - -
Suðurland 2905 2327 1775 1609

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar