Fólk25. febrúar 2021

Skráning fæddra, látinna og nýskráning erlendra ríkisborgara á 4. ársfjórðungi 2020

Alls voru skráðir 1.068 nýfæddir einstaklingar á 4. ársfjórðungi ársins, 1.058 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 49 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.

 
Alls voru skráðir 1.068 nýfæddir einstaklingar á 4. ársfjórðungi ársins, 1.058 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 56 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.  Alls var tilkynnt um 649 andlát.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum voru alls 4.497 nýfæddir einstaklingar skráðir í þjóðskrá á síðasta ári samanborið við 4.434 nýfædda einstaklinga á árinu 2019. Þetta er aukning um 1,4%.
Samdráttur var hins vegar í skráningu erlendra ríkisborgara fyrir sama tímabil . Á síðasta ári voru 5.722 erlendir ríkisborgarar skráðir til landsins en árið þar áður voru 8.874 erlendir ríkisborgarar skráðir til landsins. 
 
Hér má sjá töflu yfir fjölda fæddra innanlands og Íslenskra ríkisborgara erlendis og skráning erlendra ríkisborgara til landsins auk fjölda látinna. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum sem hafa borist til Þjóðskrár Íslands.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar