Fólk02. mars 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - mars 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 490 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. mars sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Kópavogur en þar fjölgaði íbúum um 241 á sama tímabili.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 490 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. mars sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Kópavogur en þar fjölgaði íbúum um 241 á sama tímabili og íbúum Mosfellsbæjar fjölgaði um 159 íbúa.  Íbúum Hafnarfjarðarkaupstaðar hefur fækkað um 125 íbúa á sama tímabili.

Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit

 Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveit fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tvo mánuði eða um 7,7% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 5 íbúa eða úr 65 í 70 íbúa. 
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Skaftárhreppi um 4,1% og Ásahreppi um 3,6%.  Þá fækkaði íbúum í 36 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fækkun í tveimur landshlutum

Lítilsháttar fækkun varð á Austurlandi og Norðurlandi vestra.  Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 0,4% eða um 879 íbúa.  Mest hlutfallsleg fjölgun var á Vestfjörðum eða um 0,5% eða um 32 íbúa.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar