Fasteignir16. mars 2021

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2021

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 688,9 stig í febrúar 2021 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,6% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,29%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 4,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,3%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hægt er að nálgast upplýsingar á um vísitöluna í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir mars 2021 verður birt 20. apríl 2021.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar