Fólk06. apríl 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum 1. apríl 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 528 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. apríl sl. og íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði um 31 á sama tímabili

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 528 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. apríl sl. og íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði um 31 á sama tímabili. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Árneshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 10% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 4 íbúa. Næst kemur Helgafellssveit með 
7,7% fjölgun sem er líkt og með Árneshrepp lítilsháttar fjölgun í hausum talið eða um 5 íbúa. 
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Ásahreppi um 5,8% og Skaftárhreppi um 4,9%.  Þá fækkaði íbúum í 35 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fækkun í þremur landshlutum

Lítilsháttar fækkun varð á Vesturlandi, Austurlandi og Norðurlandi vestra.  Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 0,5% eða um 1.118 íbúa.  Íbúum á Vestfjörðum fjölgaði einnig um 0,5% eða um 34 íbúa.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar