Fasteignir21. apríl 2021

Leiguverð íbúðarhúsnæðis í mars 2021

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 1,6% frá fyrri mánuði.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 200,6 stig í mars 2021 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,6% og síðastliðna 12 mánuði lækkaði hún um 0,6%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í mars 2021.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 892 samningar, sem þinglýst var í mars 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í mars 2021 eru því unnar upp úr 660 leigusamningum sem þinglýst var í mars 2021.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í mars 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.


Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4608 3404 2768 2307
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3419 3368 2465 2017
Kópavogur 3459 3114 2469 2460
Garðabær og Hafnarfjörður 4680 2799 2326 2133
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 4168 3041 2372 2269
Breiðholt - 2791 2579 2221
Kjalarnes og Mosfellsbær 2943 2531 2150 2207
Suðurnes 2734 2575 2019 1639
Vesturland - 1949 1517 1349
Vestfirðir - - - -
Norðurland nema Akureyri - - 1284 -
Akureyri - 2343 1966 2201
Austurland - 1510 1762 1191
Suðurland - 2298 1925 1923

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar