Fasteignir27. apríl 2021

Nýjar upplýsingar um stærðir íbúða birtar í Fasteignagáttinni

Yfirlit yfir stærðir íbúða í fjölbýli og sérbýli eftir byggingarárum birtast nú í Fasteignagátt Þjóðskrár en birtingin er sjálfvirkt uppfærð á hverjum morgni. Skoða má gögnin eftir landshlutum og sveitarfélögum.

Nýjar upplýsingar um stærðir íbúða eru nú birtar í Fasteignagátt Þjóðskrár. 

Þar má finna yfirlit yfir meðalstærðir og miðgildi íbúða í fjölbýli og sérbýli hverju sinni eftir byggingarárum. Skoða má gögnin bæði eftir landshlutum og sveitarfélögum.

Gögnin eru uppfærð með sjálfvirkum hætti á hverjum degi og því má alltaf ganga að því vísu að um sé að ræða nýjustu upplýsingar hverju sinni samkvæmt skráningu í fasteignaskrá.

Nánar um gögnin:

  • Um er að ræða meðaltöl og miðgildi fermetra fyrir allar matseiningar í Fasteignaskrá sem eru skráðar sem íbúðir og hafa fengið úthlutað byggingarári samkvæmt skráningu byggingarfulltrúa.
  • Allar tölur eru áramótastöður í lok árs nema fyrir núverandi ár en þær tölur eru uppfærðar sjálfkrafa einu sinni á dag.
  • Eignir eru taldar sem sérbýli ef um er að ræða einbýli, parhús eða raðhús. Aðrar íbúðareignir teljast sem fjölbýli.
  • Meðaltöl og miðgildi fermetra innan hvers sveitarfélags miðast við núverandi afmarkanir sveitarfélaga.

 



Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar