Fólk03. maí 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum þann 1. maí 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 558 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. maí sl.

 

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 558 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. maí sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 382 á sama tímabili og íbúum Akureyrarbæjar um 34 íbúa. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Árneshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 15% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 6 íbúa. Næst kemur Helgafellssveit með 
7,7% fjölgun sem er líkt og með Árneshrepp lítilsháttar fjölgun í hausum talið eða um 5 íbúa. 
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Ásahreppi um 4,7% og Skaftárhreppi um 4,6%.  Þá fækkaði íbúum í 36 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fækkun í einum landshluta

Lítilsháttar fækkun varð á Norðurlandi vestra eða um 0,1% sem gera fækkun um 10 íbúa.  Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 0,5% eða um 1.207 íbúa og á Suðurnesjum fjölgaði íbúum einnig um 0,5% eða um 131 íbúa.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar