Fasteignir25. maí 2021

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í apríl 2021

Í apríl 2021 var 52 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 50 kaupsamningum utan höfuðborgarsvæðisins.

 
Í apríl 2021 var 52 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 4.519 milljónir króna.

Þar af voru 37 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 4.883 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 3.807 milljónir króna.

Á sama tíma var 50 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.357 milljónir króna.
Þar af voru 34 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.312 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 878 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar