Fólk02. júní 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í júní 2021

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 721 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. júní sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 439 á sama tímabili. Hins vegar hefur þeim sem eru skráðir með búsetu í Hafnarfirði fækkað um 203 íbúa.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 721 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. júní sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 439 á sama tímabili og íbúum Akureyrarbæjar um 60 íbúa. 
Hins vegar hefur þeim sem eru skráðir með búsetu í Hafnarfirði fækkað um 203 og íbúum á Seltjarnarnesi  um 69 sem gerir um  1,5% fækkun. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Árneshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 12,5% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 5 íbúa.  Næst kemur Tjörneshreppur með 
8,9% fjölgun sem er líkt og með Árneshrepp lítilsháttar fjölgun í hausum talið eða um 5 íbúa. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Ásahreppi um 5,8% og Fljótsdalshreppi um 5,1%.  Þá fækkaði íbúum í 30 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fjölgun í öllum landshlutum

Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest á Vestfjörðum eða um 0,9% og á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Austurlandi um 0,6%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar