Fólk07. júní 2021

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í júní 2021

Alls voru 229.625 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. júní síðastliðinn.

 

Alls voru 229.625 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. júní síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 92 síðan 1. desember sl. 
Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.693 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.006 meðlimi.

Fjölgun mest í ásatrúarfélaginu

Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í ásatrúarfélaginu um 172 meðlimi og í siðmennt um 159 meðlimi. Mest fækkun var í zuism eða um 162 meðlimi.  

Alls eru 7,7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 28.527 einstaklingur skráður utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. júní sl. eða 7,7% landsmanna. Alls eru 56.327 manns með ótilgreinda skráningu eða 15,1%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. júní sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar