Fasteignir28. júlí 2021

Hverjir eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á 2. ársfjórðungi 2021?

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Kaupendum og seljendum er skipt eftir því hvort þeir eru fyrirtæki eða einstaklingar og gögnin sett fram eftir ársfjórðungum til þess að minnka sveiflur af völdum mismikilla viðskipta í einstökum mánuðum.

 
 

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum og hér að ofan.

Fyrstu kaupendur

Frá október 2015 hefur Þjóðskrá Íslands birt upplýsingar um fjölda þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Taldir eru þinglýstir kaupsamningar og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku. Heimild til lægri stimpilgjalda vegna fyrstu kaupa hefur verið til staðar frá 1. júlí 2008. Af þessum sökum eru engar þinglýstar upplýsingar um fyrstu kaup fyrir þann tíma. Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum.

Upplýsingar um fyrstu kaup 2. ársfjórðung 2021

 

  Fjöldi eignarheimilda Þar af fyrstu kaup  Hlutfall fyrstu kaup 
 Höfuðborgarsvæðið  2094  717  34%
 Suðurnes  319  88  28%
 Vesturland  172  41  24%
 Vestfirðir  64  21  33%
 Norðurland vestra  44  16  36%
 Norðurland eystra  321  80  25%
 Austurland  85  25  29%
 Suðurland  277  71  26%

 

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum frá 2008.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar