Fólk03. ágúst 2021

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í ágúst 2021

Íbúum á landinu hefur fjölgað um 3.920 frá 1. desember eða um 1,1%.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 981 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. ágúst sl. og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 570 á sama tímabili. 
Hins vegar hefur þeim sem eru skráðir með búsetu í Hafnarfirði fækkað um 154 og íbúum á Seltjarnarnesi  um 18 íbúa. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveit fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 21,5% en íbúum þar fjölgaði um 14.  Næst kemur Hörgársveit með 
7,3% fjölgun en íbúum í hreppnum fjölgaði um 47. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 14,2% og Ásahreppi um 5,1%.  Þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.  

Fjölgun í öllum landshlutum
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest á Austurlandi eða um 1,8% og á Austurlandi um 1,5%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar