Fólk13. ágúst 2021

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í ágúst 2021

Alls voru 52.484 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. ágúst 2021 og fjölgaði þeim um 1.106 frá 1. desember 2020.

 
Alls voru 52.484 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. ágúst 2021 og fjölgaði þeim um 1.106 frá 1. desember 2020.  
Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 2.279 einstaklinga.
Pólskum ríkisborgurum fækkaði á ofangreindu tímabili um 109 einstaklinga en litháískum ríkisborgurum fjölgaði um 11 einstaklinga.  
Hins vegar hefur fjölgaði nokkuð í röðum rúmenskra, franskra, þýskra og spænskra ríkisborgara á umræddu tímabili. 
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019 til 2020 og 1. ágúst 2021. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar