Fólk26. ágúst 2021

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í maí 2021

Alls gengu 248 einstaklingar í hjúskap í maí mánuði. Af þeim skráðu 111 einstaklingar sig til hjúskapar hjá sýslumanni eða 44,8% en 84 einstaklingar giftu sig í Þjóðkirkjunni.

 

Hjúskapur
Af þeim 248 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í maí mánuði gengu 111 í hjúskap hjá sýslumanni eða 44,8%, 84 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 33,8% og 36 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trú- eða lífsskoðunarfélagi eða 14,5% og loks gengu 17 einstaklingar í hjúskap erlendis.
 
Skilnaðir
Alls skildu 84 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í maí sl. Þar af gengu 82 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 2 gengu frá lögskilnaði sínum fyrir dómi. 

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2021. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar