Fólk11. nóvember 2021

Skráningar í trú - og lífsskoðunarfélög í nóvember 2021

Alls voru 229.186 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. nóvember skv. skráningu Þjóðskrár Íslands og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 231 einstaklinga síðan 1. desember sl.

 

Alls voru 229.186 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. nóvember sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 231 einstaklinga síðan 1. desember sl. 

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.717 skráða  meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.023 meðlimi.

Fjölgar mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 471 meðlimi og í Ásatrúarfélaginu um 337 meðlimi. Mest fækkun var í Zuism eða um 260 meðlimi.  

Mest hlutfallsleg fjölgun var í Félagi Tíbet búddista eða um 22,2% en nú eru 44 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.124 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. nóvember sl. eða 7,8% landsmanna.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. nóvember sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar