Fólk05. janúar 2022

Skráning námsmanna á kjörskrá vegna atkvæðagreiðslna um sameiningar sveitarfélaga

Námsmenn á Norðurlöndunum sem vilja verða teknir á kjörskrá í atkvæðagreiðslu vegna sameininga sveitarfélaga geta sótt um hjá Þjóðskrá.

Vegna atkvæðagreiðslna um sameiningar í sveitarfélögunum Blönduósbæ og Húnavatnshreppi, sveitarfélögunum Eyja- og Miklaholtshreppi og Snæfellsbæ og í sveitarfélögunum Akrahreppi og Sveitarfélaginu Skagafirði sem fram fara þann 19. febrúar nk. ásamt utankjörfundaratkvæðagreiðslum geta þeir námsmenn sem áttu síðast skráð lögheimili á Íslandi í umræddum sveitarfélögum sótt um að vera teknir á kjörskrá.

Athugið að umsóknin gildir eingöngu fyrir þessar einu kosningar.

Tilkynningu um nám á norðurlöndunum skal senda rafrænt á eyðublaðinu K-101. Tilskilið er að framvísa staðfestingu á námsvist. Gert er ráð fyrir því að makar og skyldulið námsmanna tilkynni sig á sama hátt með tilvísun í viðkomandi námsmann.
Nánari upplýsingar í síma 515-5300 eða með tölvupósti á kosningar@skra.is.



Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar