Fólk12. janúar 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í janúar 2022

Alls voru 54.905 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 9. janúar síðastliðinn og eru nú 14,6% landsmanna.

 
Alls voru 54.905 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 9. janúar sl. og fjölgaði þeim um 3.527 frá 1. desember 2020 eða um 6,9%.

Erlendir ríkisborgarar eru því við upphaf ársins 14,6% landsmanna.   
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 4.102 einstaklinga eða um 1,3%.

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 227 einstaklinga og voru 21.096 talsins um síðustu mánaðarmót eða 5,6% landsmanna.   

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019 til 2020 og 9. janúar 2022. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar