Fólk14. janúar 2022

Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum og landsvæðum þann 1. des. 2021

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum.

 
Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2021.
Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 44% niður í 1%  þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Meirihluti íbúa Mýrdalshrepps eru erlendir ríkisborgarar

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru  51,0% íbúa sveitarfélagsins með erlend ríkisfang. Þann 1. desember sl. voru 412 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu í Mýrdalshreppi af alls 808 íbúum hreppsins.
Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 34,5% og Súðavíkurhreppur með 32,4% íbúa.
Þess má geta að þau sveitarfélög sem er með lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang eru Skorradalshreppur og Skagabyggð með 3,3% íbúa.

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang á Suðurnesjum með 23,5% íbúa og Vestfirðir koma næst með 19,0% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er á Norðurlandi eystra með 8,6%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2021. 
 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar