Fasteignir26. janúar 2022

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember 2021?

Í desember 2021 var 74 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 9.530 milljónir króna.

 
Í desember 2021 var 74 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 9.530 milljónir króna.

Þar af voru 48 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 6.042 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 4.825 milljónir króna.

Á sama tíma var 64 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.667 milljónir króna.

Þar af voru 40 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.377 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.196 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar