Fasteignir27. janúar 2022

Velta fasteignamarkaðarins 75 milljarðar króna í desember 2021

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.187 og var upphæð viðskiptanna um 75,0 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar desember 2021 er borinn saman við nóvember 2021 fækkaði kaupsamningum um 7,6% en velta hækkaði um 1,7%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 2,9% á milli mánaða og velta hækkaði um 7,9%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
74.967
18.216
41.404
10.664
805
3.879
Þar af höfuðborgarsvæðið
55.753
12.274 34.641 6.509 127
2.202

Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.187
245
741
157
23
21
Þar af höfuðborgarsvæðið
772
115
562
90
2
3

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar