Fólk02. mars 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í mars 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 302 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. mars 2022 og íbúum Hafnarfjarðarkaupstaðar fjölgaði um 106 íbúa á sama tímabili.

 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 302 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. mars 2022 og íbúum Hafnarfjarðarkaupstaðar fjölgaði um 106 íbúa á sama tímabili.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á þessu tímabili um 56. og í Reykjanesbæ hefur fjölgað nokkuð hressilega á umræddu tímabili eða  um 120 íbúa tímabilinu. 

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi 

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Eyja- og Miklaholtshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna þrjá mánuði eða um 3,9% en íbúum þar fjölgaði um 4 íbúa.   

Fækkar lítilsháttar í þremur landshlutum

Íbúum hefur fækkað lítilsháttar í þremur landshlutum á síðastliðnum þremur mánuðum. Hlutfallslega mest var fækkunin á Norðurlandi vestra eða um 0,5% eða um 37 íbúa. Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 0,7%.  
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 - 2021.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar