Þjóðskrá07. mars 2022

Landsmenn bera mikið traust til Þjóðskrár

Þjóðskrá er ofarlega þegar kemur að trausti til stofnana og embætta í traustskönnun sem Gallup framkvæmdi nýverið

Þjóðskrá nýtur trausts á meðal almennings og hefur aldrei mælst ofar í traustskönnun sem Gallup framkvæmdi nýverið. Í könnuninni var spurt um traust til stofnunarinnar og hversu vel einstaklingar þekkja til þjónustu og starfsemi Þjóðskrár. Helstu niðurstöður er þessar:

  • 98% svarenda þekkja til starfsemi Þjóðskrár
  • 73% svarenda bera mikið traust til Þjóðskrár
  • Einungis 3% svarenda bera lítið traust til Þjóðskrár.
  • Í samanburði Gallup við aðrar stofnanir er Þjóðskrá Íslands á meðal þeirra efstu ásamt Landhelgisgæslunni, Embætti forseta Íslands og Háskóla Íslands.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar