Fólk19. apríl 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í apríl 2022

Alls voru 55.982 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 1.003 frá 1. desember 2021 eða um 1,8%.

 
Alls voru 55.982 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 1.003 frá 1. desember 2021 eða um 1,8%.   

Það þarf ekki að koma á óvart að mest hlutfallsleg fjölgun erlendra ríkisborgara er hjá einstaklingum með úkraínskt ríkisfang en þeim hefur fjölgað um 90,4% frá 1. desember sl. og  voru þann 1. apríl sl. 455 talsins skráðir í þjóðskrá. 
Sömuleiðis hefur verið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 40,7% og eru nú 640 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi.  

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 92 einstaklinga og voru 21.283 talsins um síðustu mánaðarmót eða 0,4% landsmanna.   

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. apríl sl. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 
 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar