Fólk03. maí 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - maí 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 668 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. maí 2022 og íbúum Hafnarfjarðarkaupstaðar fjölgaði um 273 íbúa á sama tímabili.

 
 
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 668 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. maí 2022 og íbúum Hafnarfjarðarkaupstaðar fjölgaði um 273 íbúa á sama tímabili.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á þessu tímabili um 59 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað nokkuð hressilega á umræddu tímabili eða  um 402 íbúa eða um 2%. 

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fimm mánuði eða um 18,3% en íbúum þar fjölgaði um 11 íbúa.   

Fækkar í tveimur landshlutum

Íbúum hefur fækkað í tveimur landshlutum á síðastliðnum fimm mánuðum. Hlutfallslega mest var fækkunin á Norðurlandi vestra eða um 0,6% sem er fækkun um 43 íbúa. Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 1,7% á tímabilinu.  

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019 - 2021.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar