Fólk30. ágúst 2022

Skráning fæddra, látinna og nýskráning erlendra ríkisborgara á 2. ársfjórðungi 2022

Alls voru skráðir 1.055 nýfæddir einstaklingar á 2. ársfjórðungi ársins, 4.116 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 104 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.

 
Alls voru skráðir 1.055 nýfæddir einstaklingar á 2. ársfjórðungi ársins, 4.116 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 104 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis. 

Ef bornar eru saman skráningar nýfæddra á 1. ársfjórðungi ársins og 2. ársfjórðungi þá fækkaði skráningum/ fæðingum um 4,5%. Hins vegar var umtalsverð fjölgun í nýskráningum erlendra ríkisborgara til landsins eða um 55,9%. 

Skráning andláta var á síðasta ársfjórðungi 656 talsins sem er aukning frá 1. ársfjórðungi um 16,4%

Hér má sjá töflu yfir fjölda fæddra innanlands og Íslenskra ríkisborgara erlendis og skráning erlendra ríkisborgara til landsins auk fjölda látinna. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum sem hafa borist til Þjóðskrár Íslands.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar