Fólk13. október 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í byrjun október 2022

Alls voru 62.698 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. október sl. og fjölgaði þeim um 7.719 frá 1. desember 2021 eða um 14,0%.

 

Alls voru 62.698 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. október sl. og fjölgaði þeim um 7.719 frá 1. desember 2021 eða um 14,0%. Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 696,2,% frá 1. desember sl. og voru í byrjun mánaðarins alls 1.903 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 1.664 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 145,5% á umræddu tímabili og eru nú 1.117 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi. Einnig fjölgar rúmenskum ríkisborgurum töluvert þ.e.um 710 einstaklinga eða um 25,8%

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.376 einstaklinga eða um 6,5% og eru pólskir ríkisborgarar nú 5,9% landsmanna. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.305 einstaklinga eða um 0,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. október sl.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar