Þjóðskrá10. janúar 2023

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. janúar 2023

Alls voru 227.266 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. janúar sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 203 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.869 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 20 á áðurnefndu tímabili.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. janúar sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 57 meðlimir, sem er 1,1% fjölgun en næst mest í Ásatrúarfélagið eða um 35 meðlimir, sem er 0,6% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífskoðunarfélaginu DíaMat, eða um 6,6%, en nú eru 193 meðlimir skráðir í félagið.  

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 29.903 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,7% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 72.670 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022. Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar