Fólk14. febrúar 2023

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í febrúar 2023

Alls voru 65.734 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. febrúar sl. og fjölgaði þeim um 1.149 frá 1. desember 2022 eða um 1,8%.

 

Alls voru 65.734 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. febrúar sl. og fjölgaði þeim um 1.149 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 1,8%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 16,5% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 2.638 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 373 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 3,3% sem eru 119 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 3.742 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi.  Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 257 einstaklinga eða um 1,1% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 23.553 samtals.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 235 einstaklinga. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. febrúar 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

 
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar