Fólk04. maí 2023

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. maí 2023

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.685 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. maí 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 242 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 110 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 765 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 184 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Skorradalshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 6,9% en íbúum þar fjölgaði um 4 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Eyja- og Miklaholtshreppi eða 5,4% en þar fjölgaði íbúum um 6 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 12 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 52 sveitarfélögum.

Fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 3% sem er fjölgun um 929 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 4.446 frá 1. desember 2022 til. 1. maí 2023 sem er um 1,1%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar