Í ágúst 2024 voru 4.773 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 4.488 vegabréf gefin út í ágúst árið 2023.
Þá voru gefin út 557 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af 95% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars á þessu ári.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.