Flutningur 3ja aðila
Nú geta þinglýstir eigendur flett upp hverjir búa í sinni eign og tilkynnt um ranga skráningu þeirra sem ekki búa þar.
Þinglýstir eigendur fasteigna, aðstandendur og þeir sem eiga hagsmuna að gæta vegna lögheimilisskráningar annars aðila en þeirra sjálfra geta sent inn tilkynningu á flutningi 3ja aðila, telji þeir lögheimilisskráningu viðkomandi vera ranga í þjóðskrá.
- Þinglýstir eigendur geta flett upp hverjir búa í eigninni sinni og tilkynnt um ranga skráningu.
- Aðstandendur og þeir sem eiga hagsmuni að gæta vegna lögheimilisskráningar, t.d. leigjendur opna flutningstilkynningu og velja þar „Tilkynning um rangt heimili 3ja aðila“.
Athugið að flutningur sem þessi skráist ekki sjálfkrafa heldur fer í gang ferli þar sem reynt er að hafa samband við viðkomandi aðila til þess að upplýsa hann um framkomið erindi og veita honum tækifæri á gera grein fyrir réttri búsetu t.d. með því að leiðrétta skráningu sína sjálfur.
Eftir að tilkynnt hefur verið um ranga skráningu einstaklings fær viðkomandi erindi frá Þjóðskrá til að svara um lögheimilisskráningu viðkomandi. Breytingar á skráningu geta því tekið tíma frá því að tilkynning um ranga skráningu berst.
Athuga tilkynningar um 3ja aðila í þínu húsnæði
Þinglýstir eigendur fá tilkynningu í pósthólfið á Ísland.is ef einhver skráir lögheimili sitt í húsnæði þeirra.
Mínar síður á Ísland.is