Athugið!
Allir íslenskir ríkisborgarar, 14 ára og eldri, sem og erlendir ríkisborgarar sem skráðir eru með lögheimili á Íslandi og hafa haft það samfellt í 1 ár, geta fengið útgefið nafnskírteini. Samþykki forsjáraðila skal liggja fyrir vegna einstaklinga yngri en 18 ára. Barn skal mæta á umsóknarstað í fylgd forráðamanns. Í undantekningartilvikum er heimilt að barn mæti í fylgd einhvers annars ef umboð forsjármanns liggur fyrir.

Hvernig er sótt um nafnskírteini?

Hlutaðeigandi skal mæta sjálfur á afgreiðslustað með tvær passamyndir af sér. Myndirnar eiga að vera í stærð 35x45 mm og þurfa að vera nýlegar (ekki eldri en 6 mánaða) og prentaðar á endingargóðan ljósmyndapappír. Andlit skal vera án aukahluta eins og sólgleraugna, húfa eða hatta, vísa beint fram og fylla út í 2/3 myndflatar. Bakgrunnur myndar skal vera hvítur eða ljósgrár og hún skal að öðru leyti vera fullnægjandi að mati starfsmanna Þjóðskrár. Fylla þarf út umsókn á umsóknarstað í afgreiðslu Þjóðskrár í Reykjavík eða hjá sýslumönnum sé viðkomandi ekki búsettur á höfuðborgarsvæðinu.

Í undantekningartilfellum er unnt að víkja frá ofangreindri reglu ef umsækjandi getur sýnt fram á með óyggjandi hætti að honum sé ekki fært að mæta á umsóknarstað. Starfsfólk Þjóðskrár getur í þessum tilvikum mætt á dvalarstað umsækjanda á höfuðborgarsvæðinu og er þá innheimt einfalt tímagjald sérfræðings samkvæmt gjaldskrá Þjóðskrá.

Umsækjandi þarf að framvísa löggildu skilríki þegar hann sækir um nafnskírteini (íslenskt ökuskírteini eða vegabréf). Ef ekki er unnt að framvísa skilríki þá þurfa tveir vottar 18 ára og eldri, sem geta staðfest staðfest hver umsækjandi er, að vera viðstaddir á umsóknarstað. Vottar þurfa að eiga lögheimili á Íslandi. Vottar þurfa að framvísa löggildum skilríkjum (nafnskírteini, ökuskírteini eða vegabréf).

Afgreiðsla og verð

Útgáfa fyrsta nafnskírteinis er umsækjanda að kostnaðarlausu. Ef um endurútgáfu nafnskírteinis er að ræða er tekið gjald fyrir samkvæmt gjaldskrá Þjóðskrár. Greiða þarf við afhendingu umsóknar. Ef innheimta þarf tímagjald sérfræðings þá leggst það ofan á gjald fyrir nafnskírteini, sé um að ræða endurútgáfu.

Afgreiðslutími nafnskírteina er tveir til fjórir virkir dagar frá því að umsókn er skilað inn.

Lög um útgáfu og notkun nafnskírteina

Lesa nánar um lög um útgáfu og notkun nafnskírteina

Lesa nánar