Skráning samhliða nýskráningu í þjóðskrá

Börn

Sérstakar reglur gilda um hvernig staðið er að skráningu barna í trú- og lífsskoðunarfélög: 

Ef foreldrar barns eru í hjúskap eða skráðri sambúð við fæðingu barns á eftirfarandi við:

  • Ef foreldrar tilheyra sama trúfélagi, lífsskoðunarfélagi eða eru bæði utan trúfélaga er barn þeirra skráð á sama hátt og foreldrar þess.
  • Ef foreldrar tilheyra ekki sama trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi eða annað foreldrið er utan trúfélags- eða lífsskoðunarfélags er barnið skráð í ótilgreint trúfélag. 

Ef foreldrar barns eru ekki í hjúskap eða skráðri sambúð við fæðingu barns:

  • Í slíkum tilvikum verður barnið skráð í sama trúfélag eða lífsskoðunarfélag og móðir, þar sem hún fer ein með forsjá þar til gengið er frá samkomulagi um forsjá barns hjá sýslumanni.

Forsjármenn barns geta tilkynnt um breytingar á skráningu í eða úr trú- eða lífsskoðunarfélag þess. Skírn jafngildir ekki skráningu í trú- eða lífsskoðunarfélag.

Erlendir ríkisborgarar

Erlendir ríkisborgarar eru skráðir í ótilgreint trúfélag við nýskráningu í þjóðskrá. Tilkynna má um breytta  skráningu í trúfélag, lífsskoðunarfélag eða skráningu utan trúfélaga eða lífsskoðunarfélaga með því að skila eyðublaði A-280 til Þjóðskrár.

Trú- og lífsskoðunarfélög

Listi yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög

Sjá nánar