Öryggi og persónuvernd á vefnum

Athugið!
Þegar þú notar vefi Þjóðskrár verða til upplýsingar um heimsóknina sem ekki er miðlað til annarra nema í undantekningartilvikum ef um væri að ræða lagaskyldu.

Notkun á vafrakökum

Svo kallaðar vafrakökur* eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn.

Það er stefna Þjóðskrár að nota vafrakökur sparlega og með ábyrgum hætti. Notendur vefsins geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu.

Tímabundnar kökur halda utan um notandann meðan hann er inni á vefnum. Þær eyðast þegar vafra er lokað.

Þjóðskrá notar Google Analytics og SiteImprove til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið, gerð vafra og stýrikerfi. Vafrakökur sem notaðar eru til vefmælinga hafa fyrirfram skilgreindan líftíma. Einnig getur notandinn eytt þeim sjálfur. Vefmælingar eru notaðar við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar. 

* „cookies“ - sérstök skrá sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina. 

SSL skilríki

Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. kennitölur og lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.

Umsóknir og eyðublöð

Upplýsingar um notanda sem skráir sig inn í gegnum Innskráningu  í því skyni að fylla út umsókn eru varðveittar í vefumsjónarkerfinu meðan notandi er að vinna með umsóknir og skráningar. Einungis er um að ræða upplýsingar sem fylgja með innskráningunni og er þeim eytt eftir viku. Umsóknir sem koma í gegnum vefinn eru geymdar í vefumsjónarkerfinu í 90 daga. Loggfærslum er líka eytt eftir 90 daga.

Áskrift að efni vefsins

Notendur geta skráð sig í áskrift að efni vefsins. Tilkynningar um nýtt efni eru sjálfkrafa sendar á netföng sem skráð hafa verið fyrir áskrift að efni. Netföngin eru vistuð í vefumsjónarkerfinu. Þessar upplýsingar eru aðeins notaðar til að senda út tilkynningar um nýtt efni. Hægt er að segja sig úr áskrift hvenær sem er.

Vistun efnis

Vefurinn, og þær upplýsingar sem hann tekur á móti, er vistaður hjá Þjóðskrá. Stofnunin er með alþjóðlega öryggisvottun (ISO 27001).

Tenglar í aðra vefi

Á vef Þjóðskrár er stundum vísað á vefi annarra stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja. Reglur Þjóðskrár um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan hans og ber stofnunin ekki ábyrgð á efni eða áreiðanleika slíkra vefja. Vísunin þýðir heldur ekki að Þjóðskrá styðji eða aðhyllist nokkuð sem þar kemur fram.

Fyrirvari

Þótt leitast sé við að hafa upplýsingar á vef Þjóðskrá réttar og í samræmi við nýjustu stöðu mála er ekki ávallt hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um tilvísanir og tengla í efni utan vefsins.