Flutningur frá Íslandi
Ekki er hægt að tilkynna flutning frá Íslandi til Norðurlanda hér. Tilkynning fer fram á skráningarskrifstofu í því Norðurlandi sem flutt er til.
Flutning frá Íslandi þarf að tilkynna innan 7 daga.
Hægt er að tilkynna flutninginn rafrænt eða í afgreiðslu Þjóðskrár í Reykjavík gegn framvísun löggildra skilríkja. Flytji hjón eða sambúðarfólk frá Íslandi þarf maki að samþykkja flutninginn.
Flutningur frá Íslandi til Norðurlanda:
- Ekki tilkynnt hjá Þjóðskrá Íslands
- Flutningur er tilkynntur hjá hlutaðeigandi skráningarskrifstofu í því Norðurlandi sem flutt er til
- Skráningarskrifstofa upplýsir Þjóðskrá Íslands þegar flutningur hefur verið skráður til landsins
Athugið að ef annar aðili í sambúð flytur til útlanda þá er sambúð slitið í þjóðskrá með þeim réttaráhrifum sem slíkt felur í sér t.a.m. ef viðkomandi eiga börn saman þá má ekki slíta sambúð nema að búið sé að ganga frá forsjá.
Skoða skráningu í þjóðskrá á Ísland.is
Á mínum síðum á Ísland.is má sjá yfirlit yfir lögheimilisskráningu.
Mínar síður á Ísland.isDulið lögheimili
Einstaklingur og fjölskylda á sama lögheimili getur óskað eftir því að fá lögheimili sitt dulið.
Nánar um dulið lögheimiliVeitur
Ef þú ert að flytja eða vilt að nýr notandi taki við sem greiðandi af ákveðnum mælum er mikilvægt að tilkynna það hjá Veitum.
Tilkynna flutning hjá Veitum