Flutt innanlands
Flutning þarf að tilkynna innan 7 daga.
Ekki er heimilt að skrá lögheimilisflutning lengra aftur í tímann en 14 daga, sbr. lög um lögheimili og aðsetur, nema hægt sé að framvísa gögnum sem staðfesta búsetu þína aftur í tímann, þá aldrei lengur en eitt ár aftur í tímann frá þeim degi þegar beiðni er lögð fram, sbr. 4. mgr. 16. gr. laganna.
Gögn sem staðfesta búsetu geta til dæmis verið undirritaður leigusamningur, hita- og rafmagnsreikningur eða önnur gögn sem staðfesta búsetu frá tilgreindum tíma. Nafn og kennitala ásamt tilgreindu heimilisfangi og dagsetning verða að koma fram í þessum gögnum.
Flutning er hægt að tilkynna rafrænt eða með því að mæta í afgreiðslu Þjóðskrár í Reykjavík. Vinsamlegast athugið að framvísa þarf löggildum skilríkjum.
Einstaklingar geta ekki tilkynnt flutning lögráða barna sinna eða foreldra.
Einungis er heimilt að skrá lögheimili í íbúðarhúsnæði og þarf húsnæðið að vera komið á byggingarstig 4.
Í þeim tilvikum þegar hjón eru að flytja á sitthvort lögheimilið þarf maki að samþykkja flutninginn á þessu eyðublaði innan 48 tíma frá því að flutningstilkynning er skráð.
Skoða skráningu í þjóðskrá á Ísland.is
Á mínum síðum á Ísland.is má sjá yfirlit yfir lögheimilisskráningu.
Mínar síður á Ísland.isDulið lögheimili
Einstaklingur og fjölskylda á sama lögheimili getur óskað eftir því að fá lögheimili sitt dulið.
Nánar um dulið lögheimiliVeitur
Ef þú ert að flytja eða vilt að nýr notandi taki við sem greiðandi af ákveðnum mælum er mikilvægt að tilkynna það hjá Veitum.
Tilkynna flutning hjá Veitum