Forsetakosningar

Hver er minn kjörstaður? Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í forsetakosningum sem verða 1. júní.

Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn og lögheimili kjósanda ásamt sveitarfélagi. Þá birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.

Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi þann 24. apríl 2024.

Ertu með spurningar varðandi skráningu þína á kjörskrá? Hér getur þú fundið gagnlegar upplýsingar.

Athugasemdir varðandi kjörskrá má senda á kosningar@skra.is

Skrifaðu kennitöluna þína í reitinn  hér fyrir neðan til að sjá hvar þú átt að kjósa:

Vinsamlegast sláðu inn kennitölu.

 

Hver hefur kosningarétt við forsetakjör?

  • Íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi 
  • Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og hefur ÁTT lögheimili hér á landi á kosningarrétt í sextán ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu.  
    Eftir 16 ára búsetu erlendis skal sækja um til Þjóðskrár Íslands að vera tekinn á kjörskrá
  • Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi, og hafa ekki fengið íslenskt ríkisfang, eru ekki með kosningarétt við forsetakjör.

 

Frekari upplýsingar um kosningarétt

Kosning utan kjörfundar

Ef kjósandi hefur ekki tök á að kjósa á sínum kjörstað þann 1. júní nk. er hægt að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumönnum. Hér er hægt að sjá staðsetningar og opnunartíma sýslumanna.  

 

Sjá nánar hér

Kosning.is

Upplýsingasíða varðandi kosningar sem eru í gangi.

Skoða nánar