Synjun á útgáfu vegabréfs
Þjóðskrá er heimilt að synja útgáfu vegabréfs vegna eftirtalinna atriða:
- Einstaklingur hefur ekki íslenskt ríkisfang.
- Umsækjandi er eftirlýstur af lögreglu, gefin hefur verið út handtökuskipun á hann, lagt á hann farbann og umsækjandi ekki afplánað dóma.
- Samþykki forsjáraðila barns yngra en 18 ára vantar.
- Samþykki lögráðamanns vantar fyrir vegabréfi handa einstaklingi sem hefur misst sjálfræði.
- Umsækjandi getur ekki gert fullnægjandi grein fyrir sér eða veitt nauðsynlegar upplýsingar fyrir umsókn.