Þjóðskrá27. janúar 2015

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember 2014

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í desember 2014 var 69 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 5.299 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 30 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 83 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.676 milljónir króna.

Á sama tíma voru 30 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.326 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.964 milljónir króna. Af þessum samningum voru 11 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 26 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 626 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 411 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar