Þjóðskrá18. mars 2015

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í febrúar 2015

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 141,2 stig í febrúar 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 141,2 stig í febrúar 2015 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í febrúar 2015.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 735 samningar, sem þinglýst var í febrúar 2015. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í febrúar 2015 eru því unnar upp úr 488 leigusamningum sem þinglýst var í febrúar 2015.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í febrúar 2015 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3309

2464

2192

1700

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2177

2291

1891

-

Kópavogur

-

2083

1876

1763

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2056

1815

1453

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

2158

2267

1835

1495

Breiðholt

-

2020

1785

1671

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

1824

1539

1484

Suðurnes

-

1345

1334

1016

Vesturland

-

1179

1186

928

Vestfirðir

-

-

-

626

Norðurland nema Akureyri

-

1203

848

804

Akureyri

-

1508

1430

1230

Austurland

-

1312

1219

982

Suðurland

1807

1319

1344

986

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar